Hleðslutæki CS One 3-180ah

Frá Ctek - Vörunúmer: CK40330

42.995 kr


CS ONE hleðslutækið

Nú er orðið miklu einfaldara að hlaða rafgeyma með CTEK CS ONE. Hin byltingarkennda hátækni, APTO™ (Adaptive Charging) sér um að hugsa fyrir þig – þú þarft ekki einu sinni að velta fyrir þér hvar á að setja klemmurnar! Þetta er auðveldasta hleðslutæki sem þú munt nokkurn tímann nota. Nákvæm app-stýring sem opnar fyrir nokkra möguleika til viðbótar, gerir þetta að fullkomnasta hleðslutæki sem til er í dag. Mjög einfalt í notkun. Afar snjallt. Einfaldlega CS ONE.

Hið byltingarkennda aðlögunarhæfa hleðslutæki sem viðheldur einnig hleðslunni

APTO™ tæknin þekkir strax hvaða gerð af geymi þú ert að nota og sendir sjálfkrafa sérútbúið hleðsluprógramm sem lætur þig vita hvenær geymirinn verður fullhlaðinn og tilbúinn til notkunar. Engir takkar eða stillingar, bara tengja CS ONE við hvaða 12V geymi sem er og byrja að hlaða.

Engin pólun á klemmunum svo þú þarft ekki að hugsa um hvaða klemma fer hvert, svo nú verða engar rangar tengingar. Klemmurnar neista ekki heldur svo það gerir ekkert þó þú látir þær óvart snertast.

Opnaðu fyrir viðbótarmöguleika með Bluetooth® virkjaða CTEK App.– appinu.

  • Veldu 'RECOND‘ (‚ENDURNÝJA‘) til að endurheimta og endurnýja geyminn.

  • Veldu 'WAKE UP' (‚VEKJA‘) fyrir litíum geyma með undirspennuvörn eða til að endurnýja algerlega afhlaðna blýrafgeyma.

  • Veldu 'SUPPLY' (‚STYÐJA‘) til að gera CS ONE að nytsamlegum 12 V möguleika. Þú getur líka fylgst með spennunni og amper sem hleðslutækið gefur.

Möguleikar

• RECOND (ENDURNÝJA) - möguleiki til að endurheimta og endurnýja blýrafgeyma.

• WAKE UP (VEKJA) – möguleiki til að endurlífga liþíum- og blýrafgeyma sem virðast algerlega tómir.

• 12V SUPPLY (STYÐJA) til að styðja við rafgeyminn þegar bíllinn er í þjónustu og viðhalda tengistraumnum við ökutækið þegar verið er að skipta um geymi eða fjarlægja.

• ADVANCED SETTINGS (FLEIRI STILLINGAR) til að fylgjast með hleðslustraumnum í voltum og amperum.

• Má skilja eftir tengdan á öruggan hátt yfir langan tíma þegar verið er að hlaða í viðhaldi.

• Ný endingargóð hönnun sem auðveldar notkun með frábæran festibúnað að aftanverðu til að geta auðveldlega tengt við CS aukahluti.

• 5 ára ábyrgð.

StaðsetningLagerstaða?
Klettháls 5 (lager)
Bíldshöfði 10
Akureyri
Hafnarfjörður
Selfoss

Stilling hf.