Vökvakerfisbætiefni

- Vörunúmer: LM5116

4.595 kr


Vökvabætiefni

Hydraulic System Additiv inniheldur efni sem ver og viðheldur vökvakerfum, sem og þéttingum á borð við O-hringi. Hydraulic System Additiv dregur úr núningi og kemur í veg fyrir að efni festist saman. Þannig lækkar hitastig olíunnar og það hægist á niðurbroti hennar. Íhlutir vökvakerfisins (t.d. dælur) eru einnig varðir gegn sliti. Að auki ver bætiefnið vökvakerfið gegn tæringu og úrfellingum óhreininda. Hydraulic System Additiv dregur úr þörf á viðgerðum með tilheyrandi sparnaði á tíma og rekstarkostnaði.

Eiginleikar:

  • Viðheldur þéttingum
  • Minnkar núning og kemur í veg fyrir að hlutir festist saman
  • Kemur í veg fyrir úrfellingar óhreininda
  • Ver gegn tæringu<
  • Lækkar hitastig olíu og dregur úr niðurbroti hennar
  • Lengir tímabil á milli viðhalds með tilheyrandi sparnaði á tíma og kostnaði

Notagildi: Varan er ætluð vökvakerfum í iðnaði og vöruflutningabifreiðum í landbúnaði og skógrækt.

Notkun: Ef nota á Hydraulic System Additiv til að fyrirbyggja vandamál er skammtastærðin 2-4% af rúmmáli olíunnar í vökvakerfinu en til að leysa vandamál skal efnið vera 4-8% af rúmmáli olíunnar í vökvakerfinu. Nota má efnið á kerfi sem innihalda jarðolíur eða vetnisklofna olíugrunna skv. DIN 51524, hlutar 1, 2 eða 3.

Ath: Hydraulic System Additiv má ekki nota á kerfi sem innihalda efni sem brotna hratt niður í náttúrunni (HEPG, HETG eða HEES). Hydraulic System Additiv má ekki nota í bremsukerfum bifreiða.

Magn 1 Líter

StaðsetningLagerstaða?
Klettháls 5 (lager)
Bíldshöfði 10 Nei
Akureyri
Hafnarfjörður Nei
Selfoss
Stilling hf.