Pro-Line JC Purge Dísel innspýtingarhreinsir 500ml

- Vörunúmer: LM2996

3.995 kr


Hreinsir fyrir hráolíukerfið

Hreinsirinn inniheldur blöndu efna með öfluga hreinsunareiginleika. Þessi sérstöku bætiefni tryggja einstaka tæringarvörn og bæta bruna (hækka setan-tölu). Hentar öllum dísilvélum til að koma í veg fyrir og leiðrétta vandamál tengd ójöfnum lausagangi og vélarbanki við meðalsnúning. 500 ml henta bæði sem forvörn og til að bæta úr vandamálum.

Eiginleikar:

  • Hreinsar eldsneytiskerfi
  • Brýtur niður útfellingar í innspýtingarventlum
  • Bætir bruna (hækkar setan-tölu) dísil eldsneytis
  • Kemur í veg fyrir vélarbank við meðal álag
  • Ver gegn tæringu
  • Tryggir góðan og hreinan bruna
  • Eykur áreiðanleika og hagkvæmni

Notkun: Sem forvörn: Bætið við dísileldsneyti samkvæmt skoðunaráætlun vélar.

Til að bæta úr gangvandamálum: Losið eldsneytisdæluna og sökkvið enda hennar ofan í brúsann. Lokið fyrir bakflæðið eða látið leka til baka í brúsann. Ræsið vél og látið hana ganga á mismunandi snúningshraða með óblönduðum hreinsinum. Setjið eldsneytiskerfið aftur saman eftir hreinsun. Í erfiðum tilfellum gæti þurft að endurtaka hreinsunarferlið. Önnur aðferð er að skipta um hráolíusíu með því að fylla hráolíusíuna með hreinsinum og gangsetja vélina og fara að, eins og áður var lýst.

Önnur leið til að meðhöndla vandamál í dísileldsneytiskerfum er að nota Jet-Clean búnaðinn frá LIQUI MOLY. Hellið 2-3 lítrum af hreinsinum í Jet-Clean tankinn. Nánari upplýsingar um notkun Jet-Clean fylgja með búnaðinum.

ProLine línan frá Liqui Moly er einungis ætlað til notkunar á verkstæðum af þeim sem hafa þekkingu á efninu.

StaðsetningLagerstaða?
Klettháls 5 (lager)
Bíldshöfði 10
Akureyri
Hafnarfjörður
Selfoss
Stilling hf.