Liqui Moly DOT 4 er tilbúinn bremsuvökvi, byggður á glýkóleterum, alkýlpólýglýkólum og glýkóleteresterum. Hann inniheldur efni sem tefja tæringu málmíhluta í bremsukerfum og draga úr oxun við hátt hitastig. Þetta hindrar myndun súrra niðurbrotsefna. Liqui Moly DOT 4 bremsuvökvi var þróaður sérstaklega til að lengja líftíma íhluta í vökvabremsukerfum og kúplingum í farartækjum.
Liqui Moly DOT 4 bremsuvökvi hefur hátt suðumark, bæði hreinn og eftir rakaídrátt, og tryggir þannig örugga hemlun eftir langa notkun. Sérstakir rakaeyðar hindra að gufubólur geti myndast.
Liqui Moly DOT 4 bremsuvökvi hentar afar vel til notkunar í ABS bremsukerfum.
Eiginleikar:
Notkunarsvið: Liqui Moly DOT 4 bremsuvökvi hentar afar vel á öll diska- og skálabremsukerfi, sem og kúplingar í faratækjum sem gerðar eru fyrir tilbúna bremsuvökva.
Leiðbeiningar: Liqui Moly DOT 4 bremsuvökva má nota á allan venjulegan búnað við skipti á bremsuvökva. Liqui Moly DOT 4 bremsuvökvi blandast fullkomlega við alla aðra vandaða tilbúna bremsuvökva. Lengstur líftími fæst þó með vökvanum óblönduðum.
Athugið: Fylgið leiðbeiningum og kröfum framleiðenda farartækjanna!.
Magn: 5 lítrar
Ítarlegri upplýsingar er að finna í vörulýsingu undir skrár hér að neðan