Thule Outset - Tjald á kúlu

Thule Outset tjaldið er fest á kúlu og býður upp á óviðjafnanleg þægindi, auðvelda notkun og frábært aðgengi.

Bylting í útivist

Thule Outset er upphækkað frá jörðu og býður uppá frábært tjaldstæði og er laust við óþægindi af leðju, pöddum eða ójöfnu landslagi. Einstök hönnun tryggir skjóta uppsetningu, sem gerir ævintýrin þín þægilegri.

Veitir heimaþægindi í náttúrinni

Með víðáttumiklu útsýni og rúmgóðri innréttingu er tjaldið þægilegt fyrir þig og þína. Aðgengi er lykilatriði í Thule Outset, þar sem lítil hæð tryggir greiðan aðgang fyrir alla, þar á meðal börn, eldri borgara og gæludýr.

Þægindi eru lykilatriði

Til að festa tjaldið á dráttarbeisli bílsins þarf aðeins einn mann, sem einfaldar uppsetningarferlið. Þegar þú hefur sett upp tjaldbúðir á áfangastað getur þú einfaldlega aftengt tjaldið frá bílnum ef þú vilt fara í dagsferð með bílnum. Hægt er að læsa tjaldinu á öruggan hátt á tjaldstæðinu.



Afhverju að velja Thule Outset

Auðvelt í uppsetningu

Tjaldið er sett upp á nokkrum mínútum, einfaldlega fjarlægðu ferðahlífina, festu undirstöðuna og flettu tjaldið upp.

Eins manns uppsetning

Hjól á tjaldinu gera einum manni kleift að rúlla því auðveldlega að ökutækinu og þægilegt uppsetningarkerfi gerir það auðvelt að setja tjaldið á dráttarbeislið.

Læsanlegt

Hægt er að læsa tjaldinu við bílinn og einnig er hægt að læsa því þegar það er aftengt bílnum á tjaldstæði

Fullur aðgangur að skottinu

Tjald hallar svo þú hafir aðgang að skottinu.


Hægt að losa frá ökutæki

Veldu að hafa tjaldið fast við bílinn eða aftengja það ef þú vilt nota ökutækið þitt en halda tjaldbúðunum þínum .

Hágæða þægindi

Tjaldið er rúmgott að innan sem gerir þér kleift að setjast upp inni í tjaldi, frábært til að hanga með vinum og fjölskyldu á þægilegan hátt
Þægileg 7 cm dýna veitir hágæða þægindi og hægt er að skilja hana eftir inni í tjaldinu þegar þú pakkar saman

Ferðahlíf heldur tjaldinu hreinu

Færanleg ferðahlíf heldur tjaldinu þurru og hreinu á ferðalögum þínum

Auðvelt aðgengi

Lítil hæð tryggir greiðan aðgang fyrir alla, þar á meðal börn, eldri borgara og gæludýr.

Haltu þig af jörðinni

Upphækkaði pallurinn heldur þér frá skítugu, blautu og grýttu jörðinni

Frábært útsýni og frábært loftflæði

Stórar hurðir og gluggar leyfa loftflæði og víðáttumikið útsýni, en glugganum er hægt að rúlla upp að hluta til til að viðhalda næði.

Vörn gegn veðri

Regnhlífin verndar gegn veðri.

Stilling hf.