Álagsmælir fyrir rafgeyma

Frá Midtronics - Vörunúmer: MIMDX335P

84.890 kr


Midtronics MDX 300

Rafgeyma og rafkerfisprófari sem prófar hefðbundna 12-volta rafgeyma, AGM og gel rafgeyma svo og 12-volta ræsi og hleðslukerfi fólksbifreiða, jeppa og pallbíla. Prófunarniðurstöður koma fram á augnabliki og niðurstöðurnar má prenta til að afhenda viðskiptavinum þær á pappír.

Viðbótareiginleikar gefa kost á:

  • Prófa rafgeyma 100 til 900 CCA
  • Greina bilað hólf (sellu)
  • Vörn gegn öfugri pólun
  • Prófa afhlaðna rafgeyma
  • Prófa eftir mismunandi getustuðlum (CCA, SAE, DIN, EN, IEC
  • Býður upp á texta á 19 tungumálum

Skjár og lyklaborð: Þegar prófarinn er tengdur við rafgeymi virkar hann fyrst sem voltmælir þar til ýtt er á ENTER hnappinn. Skráin á skjánum leiðir prófunina áfram skref fyrir skref. Nota má hnapp á lyklaborðinu til að renna yfir listann til að velja af honum.

ÁRÍÐANDI: Ef prófarinn er tengdur við hærri spennu en 30 Vdc getur það skemmt rásir tækisins.

Stilling hf.