Speed Tec dísilbætiefni 1ltr

- Vörunúmer: LM5160

4.976 kr


Speed Tec

Speed Diesel Additive inniheldur blöndu virkra efna sem hreinsa og brjóta niður óhreinindi, ásamt því að hafa verjandi eiginleika. Blandan hæfir nýjustu gerðum af vélum, eldsneyti og keyrsluskilyrðum.

Eiginleikar:

  • Heldur eldsneytiskerfi og brunahólfi hreinu og kemur í veg fyrir úrfellingar
  • Tryggir bættan bruna og þar með minni eldsneytisnotkun
  • Kemur í veg fyrir að hreyfanlegir hlutir í innspýtingarkerfi festist
  • Eykur frammistöðu og er notadrjúgt
  • Ver innspýtingardælur, nálar, stimpla og útblásturloka
  • Auðveldar ræsingu í köldu veðri
  • Mýkri bruni

Notagildi: Má bæta út í dísileldsneyti allra dísilvéla svo sem í fólksbifreiðum, vöruflutningabifreiðum, dráttarvélum, rútum, vinnuvélum og kyrrstæðum vélum. Hentar vel til að varðveita vélar sem eru úr notkun í lengri tíma eða vinna við erfiðar aðstæður.

Notkun: 1 lítri af efninu hentar fyrir 400 lítra af dísileldsneyti. Lokið á brúsanum er líka mæliglas sem mælir 25 ml sem henta fyrir 10 lítra af dísileldsneyti. Efnið blandast eldsneytinu sjálfkrafa.

Magn 1 Líter

Stilling hf.