Rótgróið fyrirtæki í örum vexti
Stilling hf. var stofnað 1.oktober 1960 sem sérhæft hemlaverkstæði. Stofnendur ásamt Bjarna Júlíussyni vour Þórður Júlíusson verkfræðingur sem átti upphaflega hugmynd af fyrirtækinu, Magnús Baldvinsson kenndur við í MEBA, Óskar Ólafsson vélstjóri og Benedikt Magnússyni kenndur við BM Vallá. Í dag er fyrirtækið leiðandi í sölu á varahlutum og aukahlutum í bíla. Stilling rekur sex öflugar verslanir víðsvegar um landið en einnig er fyrirtækið með sérstakan gagnagrunn sem verslanir og bílaumboð geta pantað úr á heimasíðu Stillingar hf.
Stilling er eitt elsta varahlutafyrirtæki á Íslandi í dag og fagnar 1. október löngu og farsælu starfi með 50 ára starfsafmæli.
Stilling hf er rótgróið fjölskyldufyrirtæki og hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu.
Stilling var fyrst til húsa að Skipholti 35 í Reykjavík og sérhæfði sig í hemlabúnaði og viðgerðum á bílum. Á þeim tíma var bílainnflutningur Íslendinga að aukast fyrir alvöru en skortur var á varahlutum í bifreiðar. Bjarni hóf því sjálfur innflutning á varahlutum til að bæta úr brýnni þör. Varð það upphaf að verslunarrekstri Stillingar.
Fljótlega varð húsnæðið of lítið og Stilling flutti starfssemi sína árið 1966 í Skeifuna 11 Reykjavík sem þá var upprennandi iðnaðarhverfi. Umsvif Stillingar hf hefur aukist jafnt og þétt og árið 2004 flutti Stilling í nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar að Kletthálsi 5 í Reykjavík, þar sem skrifstofur og heildsala fyrirtækisins eru til húsa.
Reynsla, þekking, geta, traust
Stilling kappkostar að veita viðskiptavinum sínum um land allt vandaða og góða þjónustu. Fyrirtækið er með verslanir í Reykjavík, í Kópavogi, Hafnarfirði, Selfossi og á Akureyri. Þá er hægt að panta vörur úr gagnagrunni okkar af heimasíðunni www.partanet.is. Gagnagrunnurinn inniheldur vörur frá yfir 400 framleiðendum sem gerir viðskiptavinum auðvelt í að finna réttan varahlut á auðveldan hátt. Pöntun á vöru er einstaklega auðveld, viðskiptavinurinn slær inn skráningarúmer bifreiðarinnar og finnur gagngrunnurinn þann varahlut sem passar fullkomlega.
Viðskiptavinir Stillingar eru einstaklingar, bifvélaverkstæði og bílaumboð. Stillingar sér einnig um að dreifa bílavörum og verkfærum á bensínstöðvar Skeljungs.

