25. október 2012
Vorum að fá nýja sendingu af Thule ferðaboxum í hús. Þar á meðal er nýja línan sem er undir nafninu motion ferðabox. Boxin er með nýrri glans áferð. Búið að endurhanna stærð boxanna til að hægt sé að nýta plássið sem best. Hönnuð til að geta verið framarlega á bílum svo auðvelt sé að opna skott á bílum sem opnast uppí loft. Búið að bæta handföngum á boxin svo það sé þægilegra að færa þau til og burðast með þau. Það eru komnar nýjar power clikc festingar til að festa boxin á bílinn, einföld í notkun og gerir þér kleift að taka box af bíl og setja á hann á öruggan og fljótlegan máta. Þriggja punkta festingin er áfram sem gerir þér kleift að læsa boxinu með einu handtaki. Endilega kíktu við í Stillingu í Skeifuni og finndu boxið sem hentar fyrir þig
18. apríl 2012
Okkur er sönn ánægja að tilkynna ykkur að Stilling hefur verið valið framúrskarandi fyrirtæki árið 2011. Viðurkenningin er veitt af Credit Info Í viðurkenningunni felst að fyrirtækið hefur staðist ítarlega greiningu og fengið bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 245 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur
28. apríl 2010
Á næstunni mun Stilling sýna Ford T árgerð 1914 í verslun okkar í Skeifunni 11. Verið velkomin